Góðar og slæmar fréttir fyrir Liverpool

Virgil van Dijk er klár í slaginn um helgina.
Virgil van Dijk er klár í slaginn um helgina. AFP/Adrian Dennis

Arne Slot knattspyrnustjóri Liverpool færði stuðningsmönnum félagsins góðar og slæmar fréttir á blaðamannafundi í dag.

Liverpool sækir Southampton heim í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og verður Trent Alexander-Arnold fjarri góðu gamni hjá Liverpool vegna meiðsla.

Bakvörðurinn fór meiddur af velli í 2:0-sigri Liverpool á Aston Villa fyrir landsleikjahléið og verður ekki klár í slaginn um helgina.

Virgil van Dijk varð fyrir meiðslum í landsliðsverkefni með hollenska landsliðinu en þau meiðsli eru ekki alvarleg og verður Hollendingurinn að öllum líkindum í hjarta varnarinnar hjá Liverpool gegn sínu gamla liði.

Gengi Liverpool hefur verið afar gott undir stjórn Hollendingsins Arne Slot og er liðið með 28 stig eftir ellefu umferðir í ensku úrvalsdeildinni og með fimm stiga forskot á Manchester City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert