Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að miðjumaðurinn Mateo Kovacic hafi komið meiddur til baka úr landsliðsverkefni með Króatíu.
Króatinn hefur tekið að sér hlutverk Rodri, handhafa Gullboltans, í stöðu varnartengiliðar í fjarveru Spánverjans vegna alvarlegra hnémeiðsla, en verður nú sjálfur frá um skeið.
„Kovacic er meiddur. Hann verður frá um skeið, í þrjár vikur eða mánuð,“ sagði Guardiola.