Ipswich og Manchester United gerðu jafntefli, 1:1, í 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í Ipswich í dag.
Eftir leik er Ipswich í 18. sæti deildarinnar með níu stig en Manchester United er í því tólfta með 16.
Þetta var fyrsti leikur Rúbens Amorims, nýja stjóra United, en hann tók við liðinu á dögunum.
Manchester United byrjaði með látum en á annarri mínútu kom Marcus Rashford liðinu yfir. Þá áttu Bruno Fernandes og Aamad Diallo alvöru samspil, Amad keyrði fram hjá varnarmönnum Ipiswich og gaf hann fyrir á Rashford sem potaði boltanum í netið, 0:1.
Ipswich kom hins vegar til baka og var sterkari aðilinn restina af hálfleikum. Á 42. mínútu jafnaði Omari Hutchinson metin með góðu skoti utan teigs sem fór af Noussair Mazraoui og í netið, 1:1.
Hvorugu liðinu tókst að skora í seinni hálfleik og enduðu því leikar með jafntefli.
Ipswich heimsækir Nottingham Forest í næstu umferð en Manchester United fær Everton í heimsókn.