Bauð stuðningsmanni í slag

Roy Keane.
Roy Keane. AFP/Glyn Kyrk

Roy Keane, sparkspekingur og fyrrverandi fyrirliði Manchester United, bauð stuðningsmanni Ipswich í slag eftir jafntefli liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í Ipswich í gær. 

Leiknum lauk 1:1 en Keane er sérfræðingur hjá SkySports. 

Roy Keane var orðinn pirraður á stuðningsmanni Ipswich sem hélt áfram að öskra á hann. 

Keane gekk síðan að stuðningsmanninum og bauð honum að útkljáa málin á bílastæðinu fyrir utan völlinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert