Guardiola rólegur yfir ástandinu

Pep Guardiola á blaðamannafundinum í dag.
Pep Guardiola á blaðamannafundinum í dag. AFP/Darren Staples

Pep Guardiola er lítið að stressa sig yfir gengi Englandsmeistara Manchester City í knattspyrnu karla en liðið hefur tapað fimm leikjum í röð í öllum keppnum. 

City beið afhroð á heimavelli gegn Tottenham, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn laugardag. Var það fimmti leikurinn í röð sem City tapar og sá þriðji í deild. 

Þrátt fyrir það segist Guardiola vera afar rólegur yfir ástandinu. City hefur unnið fjóra Englandsmeistaratitla í röð og sex af síðustu sjö. 

„Það er erfitt að halda í við það sem við höfum gert, þess vegna er ég svo rólegur. Við verðum hins vegar að sýna meira,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi í dag en City fær hollenska liðið Feyenoord í heimsókn í Meistaradeildinni annað kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert