Slot jafnaði met

Arne Slot á hliðarlínunni í gær.
Arne Slot á hliðarlínunni í gær. AFP/Justin Tallis

Góð byrjun Arne Slot hjá karlaliði Liverpool í knattspyrnu heldur áfram. Í gær vann hann tíunda leik sinn af fyrstu tólf við stjórnvölinn í  ensku úrvalsdeildinni.

Þar með jafnaði hann met þeirra Guus Hiddink og Carlo Ancelotti, sem sömuleiðis unnu tíu af fyrstu tólf leikjum sínum við stjórnvölin í úrvalsdeildinni, báðir hjá Chelsea.

Slot tók við stjórnartaumunum hjá Liverpool í sumar og hefur unnið 16 af fyrstu 18 leikjum sínum í öllum keppnum. Í gær hafði toppliðið betur gegn botnliði Southampton, 3:2.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert