Trent Alexander-Arnold er tilbúinn að byrja stórleik helgarinnar fyrir Liverpool gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Anfield í Liverpool á sunnudaginn.
Þetta staðfesti Arne Slot knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool á blaðamannafundi í dag.
Alexander-Arnold var ekki með í sigri Liverpool á Southampton í ensku deildinni síðustu helgi og sat allan tímann á varamannabeknnum í sigri Liverpool á Real Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Slot sagði einnig að enn væri óvissa um þátttöku Ibrahima Konaté og Conor Bradley á sunnudaginn en þeir meiddust í leiknum í gær.