Enska knattspyrnufélagið Hull City hefur rekið þýska stjórann Tim Walter frá störfum en hann stýrði liðinu aðeins í 18 leikjum.
Hull tapaði fyrir Sheffield Wednesday á þriðjudagskvöld, sem var níundi leikurinn í röð án sigurs. Hull er í 22. sæti í B-deildinni, sem er fallsæti, með 15 stig eftir 17 leiki.
Félagið rak Liam Rosenior í maí, þrátt fyrir að liðið hafi þá verið í sjötta sæti og í baráttu um sæti í umspilinu, þar sem úrvalsdeildarsæti er í boði.
Hull vann aðeins þrjá leiki af átján undir stjórn Walters.