Trent sló met félaga síns í Newcastle

Trent Alexander-Arnold fagnar ásamt Curtis Jones eftir að hafa lagt …
Trent Alexander-Arnold fagnar ásamt Curtis Jones eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Liverpool, 2:2, í gærkvöld, nýkominn inn á sem varamaður. AFP/Paul Ellis

Trent Alexander-Arnold, leikmaður Liverpool, setti nýtt met í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld þegar toppliðið gerði jafntefli við Newcastle á útivelli, 3:3.

Trent kom inn á sem varamaður um miðjan síðari hálfleik og lagði upp tvö síðari mörk Liverpool í leiknum, bæði fyrir Mohamed Salah.

Þar með er hann orðinn sá varnarmaður í sögu úrvalsdeildarinnar sem hefur átt flestar stoðsendingar en bakvörðurinn hefur nú lagt upp 61 mark.

Fyrra metið átti félagi hans í stöðu vinstri bakvarðar hjá Liverpool, Andy Robertson, sem hefur átt 60 stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert