Lygileg endurkoma United gegn City

Amad Diallo fagnar marki sínu.
Amad Diallo fagnar marki sínu. AFP/Paul Ellis

Amad Diallo var hetjan þegar Manchester United vann magnaðan endurkomusigur á Manchester City, 2:1, í 16. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á heimavelli City í dag. 

Með sigrinum er Manchester United komið í tólfta sætið með 22 stig en City er í fimmta með 27. 

Josko Gvardiol kom Manchester City yfir á 36. mínútu leiksins með skallamarki eftir fyrirgjöf Kevin De Bruyne sem fór af varnarmanni og beint á kollinn á Króatanum sem stangaði boltann listilega í netið, 1:0. 

United-menn fengu fá færi í seinni hálfleik og virtist City ætla að sigla sigrinum heim. Hins vegar á 86. mínútu gerði Matheus Nunes hrikaleg mistök í liði City og United fékk vítaspyrnu. 

Þá sendi hann boltann beint á Amad Diallo sem var einn gegn Ederson en fór ekki í skotið. Hann reyndi að fara fram hjá Ederson en þá braut Nunes, sem var kominn til baka, á Amad og Anthony Taylor dómari benti á punktinn. 

Á hann steig Bruno Fernandes sem skoraði af öryggi. 

Amad Diallo skoraði síðan sigurmark United á 90. mínútu. Þá fékk hann sendingu í gegn frá Lisandro Martínez, vippaði boltanum yfir Ederson og renndi honum í markið, 2:1, og úrslitin ráðin. 

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Aðrir virkir leikir

Njarðvík 0:0 Keflavík opna
Engir atburðir skráðir enn

Leiklýsing

Man. City 1:2 Man. United opna loka
90. mín. Amad Diallo (Man. United) skorar 1:2 - VÁ! Martínez með háa sendingu í gegn á Diallo sem er einn gegn Ederson, vippar boltanum yfir markvörðinn og potar honum síðan í netið fram hjá varnarmönnum City. Þvílíkt og annað eins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert