Chelsea hafnaði í efsta sæti deildakeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu karla með fullt hús stiga eftir heimasigur á írska liðinu Shamrock Rovers, 5:1, í Lundúnum í kvöld.
Chelsea vann alla sex leiki sína og endaði með 18 stig. Þá fer liðið beint í 16-liða úrslit keppninnar.
Marc Guiu skoraði þrennu fyrir Chelsea en hin mörkin skoruðu Kiernan Dewsbury-Hall og Marc Cucurella. Fyrir Shamrock Rovers skoraði Markus Poom.
Albert Guðmundsson spilaðifyrstu 57 mínúturnar í jafntefli Fiorentina gegn Vitoria de Guimaraes, 1:1, í Portúgal í kvöld.
Vitoria hafnar í öðrusætiSambandsdeildarinnarmeð 14 stigen Fiorentina í þriðjameð 14. Þákomasteinnig Rapid Wien, Lugano, Djurgården, Legia Varsjáog Cercle Brugge, semtapaðifyrirVíkingum, beint í 16-liða úrslit.
Sverrir Ingi Ingason lékþáallanleikinn í heimasigri Panathinaikos á Dinamo Minsk, 3:0, í Grikklandi í kvöld.
Panathinaikos endar í 13. sætiog fer í umspilið.
Andri Lucas Guðjohnsenogfélagar í Gent hafna í 17. sætinuogfaraeinnig í umspiliðen Andri lékallanleikinn í tapifyrir Larne, 1:0, í kvöld.
Þáeru Rúnar Alex Rúnarsson ogfélagar í FC Köbenhavneinnig á leiðinni í umspiliðþráttfyrir tap fyrir Rapid Vín, 3:0, í kvöld. Noah og Guðmundur Þórarinsson eruhinsvegarúrleik.