Fyrsta mark Hollendingsins (myndskeið)

West Ham og Brighton & Hove Albion gerðu 1:1-jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.

Hollendingurinn Mats Wieffer kom Hömrunum yfir á 51. mínútu og þetta var fyrsta mark hans í ensku úrvalsdeildinni en hann kom til liðsins frá Feyenoord fyrir tímabilið.

Mohammed Kudus jafnaði metin aðeins sjö mínútum síðar með skallamarki.

Svip­mynd­ir úr leikn­um má sjá í spil­ar­an­um hér að ofan, en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­starfi við Sím­ann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka