Liverpool hefur ekki tekist að vinna Englandsmeistaratitilinn í níu af þeim tuttugu skiptum sem liðið hefur verið á toppnum um jólin.
Þetta verður í 21. skiptið sem Liverpool er á toppnum um jólin en hingað til hefur liðinu aðeins tekist að vinna deildina í 55% af þeim skiptum.
Staða Liverpool-liðsins er hins vegar ákjósanlegri núna en oft áður en liðið er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar og á leik til góða.