Góð áramót hjá Skagamanninum

Stefán Teitur Þórðarson
Stefán Teitur Þórðarson mbl.is/Eyþór

Preston hafði betur gegn Sheffield Wednesday, 3:1, í ensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Preston og hann lék fyrstu 71 mínútuna á miðsvæði liðsins í dag, en leikurinn var sá síðasti á árinu hjá Stefáni og félögum. 

Preston hefur rétt vel úr kútnum, með aðeins eitt tap í síðustu níu leikjum, eftir erfiða byrjun og er liðið í 13. sæti með 29 stig eftir 24 leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert