Gary Neville, sparkspekingur og fyrrverandi fyrirliði Manchester United, spáir Liverpool ekki titlinum í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Neville spáir því að Arsenal, sem er í þriðja sæti, verði Englandsmeistari, þrátt fyrir að liðið sé níu stigum á eftir toppliði Liverpool.
Neville fór yfir fyrri helming tímabilsins ásamt Jamie Carragher, fyrrverandi leikmanni Liverpool, á SkySports.
„Arsenal er með mikla seiglu. Varnarmenn liðsins geta haldið þessu saman og hjálpað liðinu að komast í gegnum leiki. Þá held ég að liðið muni sækja betur seinni hluta tímabilsins.
Ef Arsenal fer að nálgast Liverpool í töflunni á næstu mánuðum, gæti liðinu tekist að elta Liverpool niður,“ sagði Neville.