Frá Liverpool til heimalandsins

Marcelo Pitaluga fyrir leik með U21-árs liði Liverpool árið 2023.
Marcelo Pitaluga fyrir leik með U21-árs liði Liverpool árið 2023. Ljósmynd/Liverpool

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Marcelo Pitaluga er genginn til liðs við Fluminense í heimalandinu á frjálsri sölu frá enska félaginu Liverpool.

Pitaluga er 22 ára gamall markvörður sem var á mála hjá Liverpool frá árinu 2020 en spilaði aldrei leik fyrir aðalliðið.

Hann var nokkrum sinnum á varamannabekknum í ensku úrvalsdeildinni og deildabikarnum en fékk engar mínútur.

Pitaluga kom til Liverpool frá Fluminense og freistar þess nú að koma meistaraflokksferli sínum af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert