Liverpool og D-deildarliðið Accrington Stanley eigast við í þriðju umferð ensku bikarkeppni karla í knattspyrnu á Anfield klukkan 12.15.
Fylgst er með gangi mála á mbl.is og verður fréttin uppfærð eftir atvikum leiksins.
Eftir rólega byrjun kom Diogo Jota Liverpool yfir á 29. mínútu með marki úr skoti af stuttu færi eftir sendingu frá Darwin Núnez.
Liverpool sótti hratt eftir fast leikatriði Accrington Stanley og uppskar mark, 1:0.
Trent Alexander-Arnold tvöfaldaði forystu Liverpool-manna á 45. mínútu með góðu skoti utan teigs, sem hafnaði alveg út við stöng.
Staðan er 2:0 í hálfleik.
Byrjunarliðin:
Liverpool: (4-3-3)
Mark: Caoimhín Kelleher
Vörn: Trent Alexander-Arnold, Jarell Quansah, Wataru Endo, Kostas Tsimikas
Miðja: Harvey Elliott, Tyler Morton, Dominik Szoboszlai
Sókn: Rio Ngumoha, Darwin Núnez, Diogo Jota
Accrington Stanley: (4-3-3)
Mark: William Crellin
Vörn: Donald Love, Farrend Rawson, Zach Awe, Ben Woods
Miðja: Dan Martin, Ashley Hunter, Nelson Khumbeni
Sókn: Josh Woods, Tyler Walton, Shaun Walley