Líflátshótunum beint að dómaranum

Michael Oliver.
Michael Oliver. AFP/Darren Staples

Ensku dómarasamtökin rannsaka nú líflátshótanir og aðrar hótanir sem beint var að Michael Oliver eftir leik Wolves og Arsenal í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fram fór í Wolverhampton á laugardaginn síðasta.

Leiknum lauk með naumum sigri Arsenal, 1:0, þar sem Riccardo Calafiori skoraði sigurmark leiksins seint í síðari hálfleik.

https://www.mbl.is/sport/enski/2025/01/25/umdeilt_rautt_spjald_myndskeid/

Stuðningsmenn Arsenal voru allt annað en sáttir með Oliver eftir að hann rak Myles Lewis-Skelly af velli undir lok fyrri hálfleiks og hótuðu meðal annars að uppljóstra um heimilisfang dómarans.

„Enginn dómari á að þurfa að þola ofsóknir fyrir að vinna vinnuna sína,“ segir í yfirlýsingu dómarasamtakanna.

„Svona hegðun er algjörlega óásættanleg og við stöndum þétt við bakið á Michael Oliver,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert