Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur tekið ákvörðun um að áfrýja rauða spjaldinu sem Myles Lewis-Skelly fékk í 1:0-sigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.
Lewis-Skelly fékk beint rautt spjald þegar hann stöðvaði skyndisókn með því að sparka Matt Doherty niður og mat Michael Oliver dómari það sem svo að um gróft brot hafi verið að ræða.
VAR-dómarinn Darren England staðfesti svo ákvörðunina.
Sparkspekingar á Englandi og víðar eru á einu máli um að ekki hefði átt að gefa Lewis-Skelly rautt spjald og nú mun þriggja manna nefnd á vegum enska knattspyrnusambandsins taka málið fyrir.
Arsenal vonast til þess að þriggja leikja banni Lewis-Skelly verði hnekkt.