Dæmir þrátt fyrir líflátshótanir

Michael Oliver.
Michael Oliver. AFP/Glyn Kirk

Knattspyrnudómarinn Michael Oliver mun ekki láta líflátshótanir í sinn garð koma sér úr jafnvægi og dæmir fallbaráttuslag Ipswich Town og Southampton í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Oliver sætti mikilli gagnrýni eftir að hafa gefið Myles Lewis-Skelly beint rautt spjald í sigri Arsenal á Wolves í deildinni síðastliðinn laugardag.

Sumir gengu svo langt að senda honum líflátshótanir vegna og rannsaka samtök atvinnudómara á Englandi, PGMOL, nú slík skilaboð sem bárust enska dómaranum.

Lögregluyfirvöld á Englandi hafa sömuleiðis líflátshótanir í garð Olivers til rannsóknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert