Eiður: Þekki hinar vímurnar ekkert

„Já, og einhver ótrúlegasta tilfinning sem ég hef fundið inni á fótboltavelli,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen í Vellinum á Símanum Sport þegar þáttastjórnandinn Hörður Magnússon rifjaði upp sögufrægt mark Eiðs Smára fyrir Chelsea gegn Leeds United.

Hörður hafði þá spurt Eið Smára hvort að stórkostleg hjólhestaspyrna hans fyrir 22 árum í dag væri besta markið á ferlinum.

„Það var einhver náttúruleg víma. Ég þekki hinar vímurnar ekkert þannig að ég hef ekkert til að miða við. En þetta var allavega mjög náttúrulegt,“ hélt Eiður Smári áfram í léttum tón.

Í Vellinum var rifjað upp þegar tveir íslenskir leikmenn skoruðu í ensku úrvalsdeildinni sama kvöld en það gerði Jóhannes Karl Guðjónsson sömuleiðis fyrir Aston Villa gegn Middlesbrough þann 28. janúar 2003.

Mörkin tvö og umræðu um þau má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert