Fyrrverandi knattspyrnudómarinn David Coote hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti síðan hann var rekinn af samtökum atvinnudómara á Englandi, PGMOL, fyrir óviðeigandi hegðun.
Undir lok síðasta árs birtust tvö myndskeið af Coote á samfélagsmiðlum: eitt þar sem hann úthúðaði Liverpool og fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins Jürgen Klopp og annað þar sem Coote sýgur hvítt duft upp í nefið.
„Ég faldi tilfinningar mínar þegar ég var ungur dómari og faldi sömuleiðis kynhneigð mína. Það er góður kostur fyrir dómara en hræðilegur fyrir manneskju. Þetta leiddi mig á braut alls kyns hegðunar.
Ég hef átt í vandræðum með sjálfstraust og það tengist kynhneigð minni. Ég er samkynhneigður og hef lengi átt í vandræðum með að finna fyrir stolti yfir því hver ég raunverulega er,“ sagði Coote í samtali við enska götublaðið The Sun.
„Ég hef orðið fyrir mjög miklu níði á ferli mínum sem dómari og með því að bæta kynhneigð minni ofan á það hefði það verið mjög erfitt. Það er ýmislegt sem hægt er að bæta hvað varðar mismunun í bæði fótbolta og samfélaginu í heild.
Ég vildi ekki vera manneskjan sem gerir sjálfa sig að skotmarki, ekki síst með tilliti til þess hversu miklu níði við sem dómarar verðum fyrir á annað borð,“ hélt hann áfram og viðurkenndi að hafa neytt kókaíns í flóttaskyni.
„Þetta er ekki eitthvað sem ég notaði á hverjum degi, í hverri viku eða hverjum mánuði. Það hafa komið löng tímabil sem ég hef ekki notað það.
En þetta var ein af flóttaleiðunum sem ég hafði til þess að komast undan stressi og vægðarleysi starfsins. Ég skammast mín gífurlega fyrir að hafa farið þá leið,“ sagði Coote um eiturlyfjanotkun sína.