Liverpool-maðurinn fékk tákn frá Guði

Cody Gakpo fagnar marki í leik með Liverpool um liðna …
Cody Gakpo fagnar marki í leik með Liverpool um liðna helgi. AFP/Paul Ellis

Hollenski knattspyrnumaðurinn Cody Gakpo, sóknarmaður Liverpool, segist hafa leitað eftir tákni frá Guði þegar hann þurfti að ákveða sig hvort hann færi frá PSV Eindhoven sumarið 2022.

Tvö félög í ensku úrvalsdeildinni á þeim tíma voru áhugasöm, Leeds United og Southampton. Á endanum hélt Gakpo kyrru fyrir og skipti svo til Liverpool sex mánuðum síðar, í janúar 2023.

„Ég gat farið til Southampton eða Leeds eða ég gat verið áfram. Ég setti þetta allt í Guðs hendur og bað hann um að senda mér tákn,“ sagði Gakpo í samtali við ESPN.

Fjöldi marka stýrði örlögunum

Vængmaðurinn brá á það ráð að láta fjölda marka sem hann myndi skora í leik PSV gegn Volendam í hollensku úrvalsdeildinni ráða því hver ákvörðunin yrði.

„Ef ég myndi aðeins skora einu sinni færi ég til Southampton, tvisvar þá færi ég til Leeds og ef ég skoraði þrennu myndi ég halda kyrru fyrir.

Ég skoraði tvö mörk og í þriðja markinu var óljóst hvort væri um sjálfsmark að ræða eða ekki. Svo var mér skipt af velli, ég settist við hliðina á Jordan Teze og við ræddum um stöðuna.

Hann vissi hvernig ég hugðist nálgast þetta og sagði við mig: „Núna er þetta í alvöru í höndum Guðs, hvort hann ákveði hvort þetta sé sjálfsmark eða ekki.“

Þegar allt kom til alls var þetta skráð sem mitt mark, þrenna og ég gat ekki fengið skýrara tákn,“ útskýrði Gakpo.

Á tveimur árum hjá Liverpool hefur hann staðið sig vel, sér í lagi á yfirstandandi tímabili þar sem Gakpo hefur skorað 14 mörk og lagt upp fimm í 32 leikjum í öllum keppnum til þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert