Áætlanir enska knattspyrnufélagsins Manchester United um að reisa leikvang sem rúmar 100 þúsund áhorfendur fengu byr undir báða vængi í gærkvöld.
Stjórnvöld í Trafford-hverfinu í Manchester hafa samþykkt áætlanirnar eftir að hafa fengið stuðningsyfirlýsingu frá bresku ríkisstjórninni varðandi uppbyggingu á svæðinu í heild sinni.
Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvort núverandi leikvangur, Old Trafford, verði stækkaður eða hvort byggður verði nýr leikvangur á svæðinu.
The Times segir að Jim Ratcliffe, sem á stóran hlut í félaginu, vilji frekar að um nýjan leikvang verði að ræða.
Leikvangurinn verður í samfloti með uppbyggingu á stríðsminjasafninu Imperial War Museum, og Manchester-skipaskurðinum en áætlað er að endurbyggingin á þessu öllu saman skapi 48 þúsund störf og allt að 15 þúsund íbúðir rísi á svæðinu um leið.
Old Trafford var tekinn í notkun árið 1910 og var gerður upp á síðasta áratug 20. aldarinnar og enn frekar á fyrsta áratug þessarar aldar. Hann rúmar 74.310 áhorfendur og er næststærsti leikvangur Bretlandseyja, á eftir Wembley.
„Leikhús draumanna“ er gælunafnið á leikvanginum en hann hefur látið talsvert á sjá á síðustu árum og bæði hriplekt þak og músagangur hafa verið til vandræða að undanförnu.