Skoski knattspyrnumaðurinn Kieran Tierney gengur til liðs við skosku meistarana Celtic í síðasta lagi í sumar og mögulega áður en félagaskiptaglugganum verður lokað næsta mánudag.
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Celtic, staðfesti á fréttamannafundi í dag að samningur hefði verið gerður við Tierney frá og með næsta sumari.
„Hann er ennþá leikmaður Arsenal en ljóst að hann kemur til okkar í sumar. Ef við getum fengkið hann strax, væri það frábært," sagði Rodgers.
Tierney er því á leið á heimaslóðir því hann er alinn upp hjá Celtic og fór þaðan til Arsenal fyrir sex árum. Hann er 27 ára gamall vinstri bakvörður sem á að baki 47 landsleiki fyrir Skotland og 93 leiki með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.