Þriggja manna nefnd sem enska knattspyrnusambandið skipaði hefur fallist á skýringar Arsenal í áfrýjun félagsins vegna rauða spjaldsins sem Myles Lewis-Skelly fékk í 1:0-sigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.
Lewis-Skelly, sem fékk beint rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks fyrir að stöðva skyndisókn rétt fyrir framan vítateig Úlfanna, sleppur því við að fara í þriggja leikja bann.
Dómarinn Michael Oliver mat það sem svo að Lewis-Skelly hefði gerst sekur um grófan leik og VAR-dómarinn Darren England staðfesti ákvörðunina.
Enska knattspyrnusambandið og Arsenal tilkynntu hins vegar í gær að áfrýjun félagsins hafi verið samþykkt og því fari Lewis-Skelly ekki í leikbann.