Ekki margir möguleikar í boði fyrir Rashford

Marcus Rashford.
Marcus Rashford. AFP/Oli Scarff

Enski knattspyrnumaðurinn Marcus Rashford gæti enn þá yfirgefið herbúðir enska knattspyrnufélagsins Manchester United áður en félagskiptaglugganum verður lokað.

Rashford, sem er 27 ára gamall, virðist eiga litla sem enga framtíð hjá uppeldisfélagi sínu Manchester United á meðan Ruben Amorim er stjóri liðsins.

Framherjinn hefur ekkert spilað fyrir United síðan um miðjan desember og þá hefur hann verið utan hóps í síðustu leikjum liðsins.

The Independent greinir fá því að eina félagið sem hafi áhuga á Rashford í dag sé ítalska stórliðið Juventus en hann hefur meðal annars verið orðaður við bæði Barcelona, AC Milan og Borussia Dortmund að undanförnu.

Rashford, sem er 27 ára gamall, á að baki 426 leiki fyrir félagið í öllum keppnum þar sem hann hefur skorað 138 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert