Enn meiri meiðsli hjá Tottenham

James Maddison hefur skorað níu mörk og lagt upp sex …
James Maddison hefur skorað níu mörk og lagt upp sex fyrir Tottenham á þessu tímabili. AFP/Daniel Roland

Enska knattspyrnuliðið Tottenham hefur orðið fyrir enn einu áfallinu hvað varðar meiðsli leikmanna.

Margir lykilmanna liðsins hafa verið frá keppni undanfarnar vikur og mánuði og í dag staðfesti knattspyrnustjórinn Ange Postecoglou að James Maddison  verði lengur frá keppni en búist var við.

Maddison, sem hefur komið að 15 mörkum Tottenham á þessu tímabili, missti af leik Tottenham gegn Leicester um síðustu helgi vegna meiðsla og búist var við honum fljótt aftur. Postecoglou sagði hins vegar á heimasíðu Tottenham í dag að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur.

Áætlað er að hann missi af fimm leikjum, m.a. leiknum gegn Elfsborg í Evrópudeildinni annað kvöld, seinni undanúrslitaleik deildabikarsins gegn Liverpool og leik gegn Manchester United í úrvalsdeildinni.

Auk Maddisons eru á meiðslalistanum í dag þeir Guglielmo Vicario, Cristian Romero, Destiny Udogie, Wilson Odobert, Brennan Johnson, Timo Werner og Dominic Solanke.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert