Enski landsliðsbakvörðurinn Luke Shaw er farinn að æfa með liði Manchester United á nýjan leik eftir mikla fjarveru í vetur vegna meiðsla.
Shaw hefur aðeins náð að spila þrjá leiki með United á tímabilinu, tvo í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og einn í Evrópudeildinni.
Síðast lék hann með liðinu gegn Everton í úrvalsdeildinni 1. desember og kom þá inn á sem varamaður.
Um leið er samkeppnin fyrir hinn 29 ára gamla vinstri bakvörð að harðna en Manchester United er í þann veginn að ganga frá kaupum á Dananum Patrick Dorgu frá Lecce á Ítalíu.