Kólumbíski knattspyrnumaðurinn Jhon Durán hefur samþykkt að ganga til liðs við Al Nassr í efstu deild Sádi-Arabíu en hann er samningsbundinn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.
Það er franski miðillinn L'Equipe sem greinir frá þessu en sádiarabíska félagið borgar í kringum 70 milljónir evra fyrir framherjann.
Durán, sem er 21 árs gamall, hefur verið í aukahlutverki hjá Aston Villa á tímabilinu þar sem Ollie Watkins er framherji númer eitt hjá liðinu.
Þrátt fyrir það hefur Durán skorað sjö mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og þrjú í Meistaradeildinni. Alls hefur hann skorað 12 mörk í 29 leikjum í öllum keppnum.
Hann gekk til liðs við Aston Villa frá Chicago Fire árið 2023 en hann á að baki 15 A-landsleiki fyrir Kólumbíu.