Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, segir sóknarmanninn Ollie Watkins vera ánægðan hjá félaginu. Arsenal bauð í Watkins í vikunni en Villa hefur ekki hug á að selja.
„Já, hann er ánægður með að vera hérna áfram. Þið getið spurt hann en við höfum spurt hann á hverjum degi þau ár sem við höfum unnið með honum hvernig honum líður,“ sagði Emery á fréttamannafundi í dag.
Arsenal bauð 60 milljónir punda en fékk þvert nei. Watkins sagði í viðtali við Sports Gazette árið 2020, stuttu áður en Villa keypti hann frá Brentford, að hann væri stuðningsmaður Arsenal og dreymdi um að spila fyrir félagið.
Þrátt fyrir það er ljóst að Watkins fer að minnsta kosti ekki í janúarglugganum.
„Sumir leikmenn vilja heldur fara og aðrir leikmenn samþykkja að vera hér áfram. Að vera hér og skuldbinda sig okkur og því sem við erum að berjast fyrir. Einn þeirra er Ollie Watkins,“ bætti Emery við.