Enska landsliðskonan Cloe Kelly er komin til Arsenal frá Manchester City að láni út tímabilið.
Manchester United vildi einnig fá Kelly í sínar raðir en City hafnaði tilboði granna sinna og fór hún því til Arsenal.
Kelly hefur aðeins verið í byrjunarliði City í einum leik í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og vildi hún því færa sig um set.
Sóknarkonan skráði sig í sögubækurnar er hún skoraði sigurmark Englands gegn Þýskalandi í úrslitum EM 2022 og tryggði Englandi fyrsta sigurinn á stórmóti.