Bakslag er komið í bata enska knattspyrnumannsins Luke Shaw eftir að hann sneri nýverið aftur til æfinga hjá félagsliði sínu Manchester United í kjölfar langvarandi og tíðra meiðsla.
Shaw hefur glímt við hin ýmsu vöðvameiðsli og hefur af þeim sökum ekki byrjað leik fyrir Man. United í að verða eitt ár.
Daily Mail greinir frá því að bakslagið sé smávægilegt og vænti Man. United þess að Shaw geti byrjað að æfa aftur áður en langt um líður, jafnvel strax í næstu viku.
Miðillinn rifjar þó upp að síðast þegar bakslagi bakvarðarins var lýst sem smávægilegu, í desember, hafi hann verið frá í um tvo mánuði.