Þriðja stig meistaramótsins Masters í leiknum Valorant fer fram í Berlín og hefst í lok næstu viku.
Sextán lið hafa nú tryggt sér sæti á mótinu með góðu gengi í undankeppnum. Mótið er annað stórmótið í Valorant sem haldið er á árinu, en fyrra mót ársins fór fram í Reykjavík í maí. Sigraði lið Sentinels mótið sem haldið var í Reykjavík, en þeir mæta aftur til leiks í Berlín.
Liðin sem mæta til leiks á þriðja stigi Valorant Masters í Berlín eru Gambit Esports, SuperMassive Blaze, Acend, G2 Esports, Sentinels, 100Thieves, Team Envy, KRÜ Esports, Keys Stars, Havan Liberty, Vision Strikers, F4Q, ZETA DIVISION, Crazy Raccoon, Bren Esports og Paper Rex.
Hægt verður að fylgjast með mótinu, sem hefst föstudaginn 10. september, á Twitch rás Valorant ásamt YouTube rás þeirra.