Nú þegar aðeins þrír dagar eru þangað til að þriðja stig meistaramótsins Valorant Masters hefst í Berlín, er mikið um að vera og liðin nú þegar komin Berlínarborgar til að koma sér fyrir og búa sig undir komandi keppni.
Það verður því miður ekki staðreyndin fyrir lið BREN Esports, en þeir voru eitt sextán liða sem unnu sér inn þátttökurétt í mótinu. Leikmenn liðsins, sem er frá Filipseyjum, voru ekki komnir með þær vegabréfaáritanir sem þarf til að ferðast til Berlínar á réttum tíma.
Þar af leiðandi geta þeir ekki ferðast til Berlínar til þess að taka þátt í mótinu og eru því dæmdir úr leik.Kom þetta fram í tilkynningu Valorant Esports þann 3. september síðastliðinn.
Þar sem liðið er staðsett utan Evrópu, og utan Schengen, gilda strangari reglur vegna heimsfaraldurs og tók því lengri tíma en venjulega að fá þær áritanir sem þurfti.
Aðdáendur liðsins létu í sér heyra á Twitter og notuðu myllumerkið #BringBRENToBerlin til að vekja athygli á málinu. Meira að segja mótherjar BREN Esports, liðsmenn G2, settu inn færslur á Twitter til að styðja við bak þeirra.
DubsteP, leikmaður BREN Esports, setti sjálfur inn færslu á Twitter þar sem hann sagði „Það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari,“ er hann vitnaði í þær fréttir að liðið gæti ekki tekið þátt í keppninni. Einnig setti hann inn mynd af vegabréfaáritun sinni, sem hann er nú kominn með í hendurnar, en því miður nokkrum dögum of seint.
Eru þetta gríðarlega svekkjandi fréttir fyrir liðið, en í tilkynningu frá Alex Francois, yfirmanni samkeppnisrekstar Valorant Esports, segir að liðið fái þó þau verðlaun fyrir síðasta sætið í mótinu. Segir einnig að síðasta mánuð hafi Valorant Esports leitað allra mögulega leiða til að koma BREN Esports til Berlínar, en hafi sú leit ekki borið árangur og sé þetta því miður niðurstaðan.
Kemur einnig fram í tilkynningunni að ekki komi lið í þeirra stað, heldur muni aðeins uppröðun leikja breytast í þeim riðli sem BREN Esports átti að spila í. Verði því mótið fimmtán liða mót, í stað sextán.
Er þetta ekki í fyrsta sinn sem heimsfaraldur hefur áhrif á þátttöku rafíþróttaliðs í stórmóti, en lið Renegades frá Nýja Sjálandi dróg sig úr keppni í ESL Pro League Season 14 þar sem keppt er í leiknum Counter-Strike:Global Offensive vegna hertra ferðatakmarkanna í heimalandi þeirra.