Fréttavefurinn Dot Esports fullyrðir að næsta heimsmeistaramót í leiknum League of Legends, Worlds 2021, verði haldið á Íslandi. Hefur vefurinn þetta eftir heimildum sínum.
Í nýjustu frétt miðilsins um málið kemur fram að hann hafi sterkari heimildir um að mótið verði haldið í Laugardalshöllinni, eins og mótin Valorant Masters og MSI sem haldin voru hér á landi fyrr á árinu.
Er mótið eitt stærsta rafíþróttamót í heimi, en á heimsmeistaramótinu í fyrra var samanlagt áhorf alls 49,95 milljónir á einum tímapunkti. Greindi Riot frá því að meðaláhorfið hefði hækkað um tæp 62% frá því árinu áður.
Heildarverðlaunafé mótsins í ár er rúmar 283 milljónir íslenskra króna.
Kemur einnig fram að mótið muni hefjast 5. október og er áætlað að úrslitaleikur mótsins verði spilaður 6. nóvember. Segir í umfjölluninni að allir leikir mótsins muni fara fram á Íslandi, þar sem ferðatakmarkanir eru slakar og henta vel fyrir leikmenn frá flestum löndum og landssvæðum.
Heyrðist orðrómur um að mótið yrði haldið hér á landi í kjölfar tilkynningar Riot Games, mótshaldara Worlds 2021, um að mótið yrði haldið í Evrópu, en ekki Kína eins og upphaflega var tilkynnt.
Eins og áður náðist ekki í Íslandsstofu við vinnslu fréttarinnar og Rafíþróttasamtök Íslands vildu ekki tjá sig um málið. Spennandi verður að fylgjast með gangi mála, með von um að Ísland fái aftur að njóta þeirra forréttinda að halda alþjóðlegt stórmót í rafíþróttum.