Tölvuleikurinn Battlefield 2042 hefur að geyma falið páskaegg innanleikjar en páskaeggið býður leikmönnum upp á að klappa þjarkarhundum (e. robot dogs).
Þjarkarhundarnir kallast Rangers innanleikjar og er hægt að kalla á þá í gegnum þráðlausa spjaldtölvu sem hermennirnir ganga með um á sér. Þjarkarhundarnir eru afar krúttlegir og tryggir en þeir elta leikmennina og geta aðstoðað í bardögum með því að skjóta á óvini með vélbyssu.
Hinsvegar má finna enn vinalegri hlið á þessum þjarkarhundum með því að fara með ákveðna aðgerðarrunu, sem uppgvötaðist af tölvuleikjastreyminum DANNYonPC en þá verður þjarkarhundurinn spenntur og labbar að leikmanninum, sem krýpur á kné til þess að klappa honum.
Hér að neðan má sjá myndband af þessu falda og skemmtilega páskaeggi.