Sjónvarpsstjarnan Neil Patrick Harris kemur fram í tölvuleikjaauglýsingu ásamt fjölskyldu sinni og birti Nintendo myndbandið á streymisveitunni YouTube.
Tölvuleikurinn sem var verið að auglýsa heitir Big Brain Academy: Brain vs Brain og er eins konar fjölskylduleikur sem allt að fjórir geta spilað samtímis í Nintendo Switch-leikjatölvu.
Hefur leikurinn að geyma ýmsa þjálfunarleiki á borð við minnisleiki og leiki sem ganga út á að bera kennsl á dýr út frá ljósmyndum.
Hægt er að stilla tölvuleikinn á mismunandi getustig svo að fullorðnir gætu spilað á erfiðasta stigi og börnin á því auðveldasta en þá er leikurinn sanngjarnari fyrir báða aðila.
Hér að neðan má sjá myndbandið þar sem Harris-fjölskyldan nýtur sviðsljóssins.