Lokakeppni haustmeistaramót RLCS í Rocket League hófst í gær, en mótið fer fram á LAN-viðburði í Stokkhólmi í Svíþjóð. Aðdáendur og leikmann hafa lengi beðið eftir þessum viðburði, en um er að ræða fyrsta LAN-viðburð RLCS í langan tíma.
Spennan leyndi sér ekki með lýsenda þegar útsending haustmeistaramótins hófst í gær. Aðdáendur, leikmenn og starfsfólk hafði beðið viðburðarins með eftirvæntingu, og töluðu lýsendurnir um að hafa beðið lengi eftir LAN-viburði, þar sem leikmenn og starfsfólk eru á sama stað, í Rocket League.
Haustmeistaramótið er eitt þriggja stórmeistaramóta mótaraðar RLCS, en að þeim loknum verður haldið heimsmeistaramót sem áætlað er að fari fram næsta sumar.
Sextán lið eru nú mætt til Svíþjóðar til að keppast um haustmeistaratitilinn. Snið keppninnar er svokallað swiss, þar sem lið með sama magn sigra og tapa mæta hvort öðru. Þau lið sem senda í efstu átta sætum að swiss keppni lokinni halda áfram í úrslitakeppni.
Þrjár lotur af swiss-sniði verða spilaðar, en ein og hálf umferð var leikin í gær. Í dag lýkur svo annarri lotu, og sú þriðja verður spiluð. Það kemur því í ljós eftir daginn í dag hvaða átta lið leika í úrslitakeppninni.
Liðin Dignitas, FaZe Clan, SMPR Esports og Team BDS hafa sigrað báðar sínar viðureignir, en Sandrock Gaming, NRG, Renegades og Envy hafa sigrað eina viðureign og tapað einni. Restin af liðunum hafa tapað einni viðureign, og hafa möguleika á að sigra viðureign þegar þau mætast í dag.
Leikir dagsins hefjast klukkan 16:00 í dag, en alltaf eru tvær viðureignir spilaðir samtímis. Endpoint mæta Vitality, og Complexity mæta ERA í fyrstu viðureignum dagsins.
Hægt er að fylgjast með viðureignum lokakeppni haustmeistaramóts RLCS á tveimur streymum RLCS, hér og hér. Úrslit, næstu viðureignir og stöðu swiss-keppninnar er hægt að nálgast hér.