Þegar sumir bardagaleikja rafíþróttamenn komast á ákveðið stig í keppnissenunni fer raunverulegi bardaginn að skipta minna máli og félagslegi þátturinn í samfélaginu meira máli.
CEOGaming mótið í tölvuleiknum Mortal Kombat 11 fór nýlega fram og tóku alls 259 keppendur þátt í mótinu en voru það bræðurnir Nicolas og Scorpionprocs sem komust í undanúrslit og komu áhorfendum sem og lýsanda mótsins vel á óvart.
Í seinni umferð í undanúrslitunum spiluðu þeir með sömu persónunni en er það kallað spegluð viðureign (e. mirror match) og léku þeir sér að því að kasta á milli sín galdrafugli með því að verjast gegn honum er hann stefndi að persónunni.
Myndband af þessu var birt í færslu á Reddit.