Undankeppni Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands, FRÍS, hófst í gær og voru framhaldsskólanemar úr þrettán skólum að keppa í tölvuleikjunum CS:GO, FIFA 22 og Rocket League en Tækniskólinn var sigurvegari FRÍS í fyrra.
FRÍS undankeppninni er skipt upp í þrjár deildir, þar sem keppt er í hverjum leik fyrir sig í þrjár vikur. Hver deild býr að tveimur riðlum þar sem skólar í sama riðli keppa sín á milli upp að 1. - 4. sæti og munu átta stigahæstu skólarnir úr öllum leikjunum samtals fara áfram í átta liða úrslit.
Stjórnendur FRÍS hafa sett af stað svokallaða samfélagsmiðlakeppni þar sem keppendur geta unnið sér inn aukastig fyrir að huga að líkama og sál.
Þá geta þeir fengið stig fyrir að t.d. stunda hreyfingu, læra heima, borða hollan mat og svo framleiðis en taka þarf mynd af því, birta á samfélagsmiðla og senda á stjórnendur.
Sem fyrr segir munu átta stigahæstu skólarnir halda áfram í átta liða úrslitakeppni sem hefst þann 17. febrúar. Í úrslitakeppninni munu tveir skólar mætast og keppa í öllum þremur leikjunum í best-af-þremur fyrirkomulagi en þá þurfa skólar að sigra að minnsta kosti tvo leiki til þess að halda áfram.
Streymt verður frá úrslitakeppninni á Twitch-rás Rafíþróttasamtaka Ísland auk þess að sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð2 esports en það verða samtals sjö útsendingar þar sem að Kristján Einar Kristjánsson mun lýsa leikjum auk gestalýsendunum Króla, Egil Ploder og Donnu Cruz.
Úrslitaleikurinn um fyrsta og annað sætið fer síðan fram í rafíþróttahöllinni Arena þann 31. mars.
Borgarholtsskóli
Kvennaskólinn í Reykjavík
Tækniskólinn
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Menntaskólinn í Kópavogi
Verzlunarskóli Íslands
Menntaskólinn á Ásbrú
Fjölbrautarskóli Snæfellinga
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Framhaldsskólinn á Húsavík
Fjölbrautarskóli Vesturlands á Akranesi
Menntaskólinn við Sund
Fjölbrautarskólinn við Ármúla