Íslenska Landsliðið í tölvuleiknum Overwatch, Beau Monde Cohort eða BMC, er um þessar mundir að keppa í Evrópukeppninni í Overwatch, OWEX, undir handleiðslu þjálfarans Kristófers Núma „Numling“.
BMC hefur tryggt sér sæti í umspilinu á mótinu sem fer fram næstu helgi og er því í hópi átta bestu liða í Evrópu. Liðið keppir í Norðurlanda riðlinum og spilar sinn síðasta leik í riðlinum í dag.
Spilar BMC leik gegn Nordic Dragons en bæði liðin hafa tryggt sér sæti í umspilið og snýr leikurinn í raun að því hvort liðið fer taplaust upp úr riðlinum.
Ekki verður streymt frá leiknum í dag af opinberu Twitch-rásinni EloHellEsports en hinsvegar verður streymt frá leikjum úr umspilsleikjum, sem fer fram næstu helgi.
Fyrir hönd Íslands spila þeir Hilmar Þór Heiðarsson „Steel“, Steinn Kári Pétursson „SKP“, Kristján Logi Guðmundsson „Krizzi“, Sindri Már Gunnarsson „Sindri“, Snorri Hafsteinsson „SnorrlaxZ“, Arnaldur Ingi Stefánsson „Futhark“, Egill Ari Hreiðarsson „EgillAri“, Hafþór Hákonarson „Hafficool“ og Finnbjörn Jónasson „Finnsi“.