Evrópukeppnin í Overwatch, OWEX, fór fram um helgina og tóku Íslendingar þátt í henni sem liðið Beau Monde Cohort, BMC.
Eins og svo oft áður þá skara Íslendingar framúr í því sem þeir taka sér fyrir hendur og eru Overwatch leikmennirnir okkar engin undantekning þar en BMC lenti í þriðja sæti í Evrópukeppninni.
BMC spilaði upp á þriðja sætið gegn þýska liðinu JumboSchreiner og gekk hann mjög vel. Leikmenn BMC höfðu gefið sér að leikurinn yrði auðveldur og tóku honum því rólega.
„Við hefðum átt að vera í öðru sæti en single elimination þýddi að við gátum lent á móti besta liðinu snemma. Munich Esports var langbesta liðið og við vorum bara óheppnir að lenda á móti þeim í fjögurra liða úrslitum,“ segir Hafþór Hákonarson „Hafficool“, leikmaður í BMC, í samtali við mbl.is.
„Þetta eru allt spilarar í kringum 10 í ranked svo það að við gátum gert leikina ágætlega er bara flott.“
Næst á dagskrá hjá liðinu er að bíða eftir að Open Division keppnin byrjar en með henni gefst BMC færi á að vinna sig upp í Contenders mótaröðina.
Ekki er komin dagsetning á það hvenær Open Division keppnin byrjar og mun BMC taka sér hlé frá æfingum þangað til að nær dregur.
Hér að neðan má horfa á úrslitaleik BMC gegn JumboSchreiner upp á þriðja sætið.