Rómantískasti aukapakkinn hingað til

Sims 4 Wedding Stories.
Sims 4 Wedding Stories. Grafík/Electronic Arts/Sims 4

Nýjasti aukapakkinn í Sims 4 tölvuleiknum verður sá allra rómantískasti hingað til, aukapakkinn snýr nefnilega að rómantík og brúðkaupum.

Sims 4 Wedding Stories, býður upp á nýjan heim, Tartosa, þar sem ástin er í aðalhlutverki. Þar upplifa leikmenn falleg sólsetur, strendur og skrautbúna garða. Sims 4 segir jafnframt að Tartosa sé paradís ástarinnar.

Birtu stuttmynd

Kynningarstiklan sem birt var á opinbera Sims aðganginum á YouTube er einskonar stuttmynd þar sem áhorfendur fylgjast með pari trúlofa sig og byrja að skipuleggja brúðkaup.

En smám saman áttar brúðurin sig á því að hún og unnusti hennar eiga ekki svo vel saman og að ástin í hennar lífi var sennilega manneskjan sem stóð við hliðina á henni allan tíman.

Sims 4 mun streyma frá brúðkaupi þeirra á föstudaginn klukkan 18:00 í gegnum Twitch-rásina sem og á YouTube. Einnig hefur verið sett up sérsök vefsíða fyrir brúðkaupið.

Margt í boði

Óhætt er að segja að mikil vinna hefur verið lögð í þennan nýja aukapakka og má nefna að innanleikjar geta simsar valið sér svaramenn og haldið trúlofunarveislur og æfingakvöldverði fyrir brúðkaupið.

Brúðkaupin sjálf geta einnig staðið undir kínverskum eða indverskum hefðum eins og að drekka te eða að fá henna húðflúr.

Í brúðkaupsstreyminu sem verður á föstudaginn verður farið nánar yfir alla eiginleika leiksins. 

Leikurinn kemur út 17. febrúar fyrir Mac, PlayStation, Xbox og PC-tölvur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert