Eftir harða baráttu í Stórmeistaramótinu, þar sem allra bestu leikmenn Íslands keppa í Counter-Strike: Global Offensive, voru nýjir Stórmeistarar krýndir.
Úrslitaviðureign mótsins fór fram um helgina í Arena, en þar spiluðu Dusty og Þór upp á fyrsta sætið í mótinu og jafnframt keppnisrétt í umspilsmót fyrir umspilsmót í Blast Series.
Bæði liðin spiluðu af miklu kappi en þegar uppi var staðið hafði Dusty betur af.
Dusty eru núverandi deildarmeistarar Ljósleiðaradeildarinnar, sem leið undir lok rétt fyrir Opna-, Áskorenda og Stórmeistaramótið. Var því viðbúið að liðið yrði hart í horn að taka og sannaði liðið sig með því að hreppa bikar Stórmeistaramótsins.
Til mikils var að vinna, en eins og fyrr var getið þá veitti sigur á Stórmeistaramótinu keppnisrétt í umspilsmóti fyrir Blast Series.
Heldur því Dusty áfram erlendis og fer sem flaggskip Íslendinga í mótið að þessu sinni, en liðið hefur áður sótt í keppnir á erlendri grundu með góðum árangri.