Fjórða tímabilið í Warzone og Vanguard, Mercenaries of Fortune, er hafið og færir leikmönnum ný tækifæri og krefjandi áskoranir.
Í Warzone geta leikmenn spilað á glænýja kortinu Fortune's Keep í nýjum battle royale-leikham. Caldera verður einnig uppfært, þá kemur Storage Town aftur og með viðbættum „micro points of interest“.
Leikhamir á borð við Golden Plunder, Rebirth of the Dead og Titanium Trials: Endurance verða einnig spilanlegir auk nýrra eiginleika eins og brynvarða jeppa, hraðbanka, EMP handsprengju og fleira.
Í Vanguard býðst leikmönnum að berjast á orrustuskipi í fjölspilunarkortinu USS Texas 1945 og að vaða hættulegar mýrar í Shi No Numa.
Blueprint Gun Game Debut-leikhamurinn snýr aftur þar sem leikmenn keppast við að komast fyrstir í gegnum öll vopnin til þess að sigra.
Nánari upplýsingar um Mercenaries of Fortune í Vanguard og Warzone má lesa hér í færslu á opinberu Call of Duty-heimasíðunni.