Skorar á þjóðþekkta einstaklinga í leik

Þorsteinn Friðfinnsson skorar á Andra Lucas Guðjohnsen í nýju þáttaröðinni …
Þorsteinn Friðfinnsson skorar á Andra Lucas Guðjohnsen í nýju þáttaröðinni Leikjakeppnin. Grafík/Liðakeppnin

Í dag hefst ný leikjaþáttaröð með Þor­steini „thor­steinnf“ Friðfinns­syni þar sem hann skor­ar á þjóðþekkta ein­stak­linga í tölvu­leikja­spili.

Þor­steinn er leikmaður hjá rafíþróttaliðinu Dusty og mun keppa við þátt­ar­gesti í fjöl­breytt­um leikj­um í nýju þáttaröðinni, Leikja­keppn­in. Þá fá gest­irn­ir að velja leik til þess að keppa í hverju sinni.

Fyrsti gest­ur­inn er fót­boltamaður­inn Andri Lucas Guðjohnsen og hef­ur hann nú tæki­færi til þess að sýna snilli sína í tölvu­leikj­um í beinni út­send­ingu sem og vinna til glæsi­legra verðlauna frá stuðningsaðilum þátt­ar­ins.

„Fyr­ir svona kapp­gjarna menn er hreykn­in yfir öllu, og í lok hvers þátt­ar þarf ein­hver að kyngja stolt­inu og viður­kenna sig­ur­veg­ar­ann sem sinn ofjarl í tölvu­leikj­um,“ seg­ir í til­kynn­ingu.

Þátt­ur­inn fer í loftið klukk­an 16:30 og verður hægt að horfa á hann á Twitch-rás Þor­steins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert