Keppt í Overwatch í Kópavogi um helgina

Overwatch-mót fer fram í rafíþróttahöllinni Arena á sunnudaginn.
Overwatch-mót fer fram í rafíþróttahöllinni Arena á sunnudaginn. Grafík/Arena

Íslenskir Overwatch-leikmenn geta hugsað sér gott til glóðarinnar þar sem helgarmót í Overwatch fer fram í rafíþróttahöllinni Arena um helgina.

Þetta helgarmót er ótengt Almenna í Overwatch, sem hefst í næstu viku, en er hinsvegar góð upphitun fyrir komandi tímabil sem og góð leið til að tengjast inn í samfélagið.

Mótið hefst klukkan 12:30 á sunnudaginn og þurfa keppendur að vera mættir á staðinn að lágmarki hálftíma fyrir mót.

Nánar um þetta má lesa á heimasíðu Arena.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert