Hinn íslenski tölvuleikjaframleiðandi Myrkur Games vinnur að framleiðslu tölvuleiksins Echoes of the End, eða „Echoes“ líkt og hann er ýmist kallaður. Um er að ræða metnaðarfullan hasarævintýraleik sem hefur verið í um fimm ár í bígerð.
Spilarar munu koma til með að leika söguhetjuna Ryn, leikna af Aldísi Amah Hamilton, í söguheimi sem þróaður er af fyrirtækinu frá grunni og er sagður draga mikinn innblástur frá íslensku landslagi.
Myrkur games er nýjasti viðmælandi þáttarins SETTÖPP.
Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri Myrkur Games, var gestrisnin uppmáluð þegar rafíþróttavef mbl.is bar að garði og sýndi hann umsjónarmanni SETTÖPP hina ýmsu tækni sem fyrirtækið notar í leikjagerðinni.
Sem dæmi má nefna hreyfirakningatækniver fyrirtækisins (e. motion capture-studio), hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Sjón er sögu ríkari, sjáðu þáttinn hér fyrir ofan.