Ástbjört Viðja
Streymishópurinn CM!OB hefur tekið yfir GameTíví og skemmtir áhorfendum í allt kvöld í beinni útsendingu.
Hópurinn samanstendur af þeim Þórarin Hjálmarssyni, Árna Torfasyni, Ágústi Berg Arnarssyni, Gauta Rafn Vilbergssyni og Sigurjóni Guðjónssyni og hefur þeim verið lýst sem eldhressum Warzone-spilurum.
Allir eiga þeir það sameiginlegt að vera kyrfilega ráðfastir og spila fyrir útrásina. Hinsvegar eru þeir staðsettir víðsvegar um heiminn, þá á Íslandi, í Svíþjóð, Sviss og Bandaríkjunum sem þýðir að þeir spila á ólíkum tímabeltum.
Hér að neðan má horfa á CM!OB í beinni útsendingu á GameTíví.